Sálmabók

204. Sjá þann hinn mikla flokk

Kirkjuár - Allra heilagra messa

hymn notes
1 Sjá þann hinn mikla flokk sem fjöll er fjölsett gnæfa' í skrúði' af mjöll, hið prúða lið sem pálmavið fyrir hástól heldur á. 2 Það hetjuvalið hér má sjá er hörmunginni miklu frá heim komið hér til Herrans er fyrir lambsins blessað blóð. 3 Og sínum Guði sigurljóð nú syngur þessi hirðin góð með hjörtun trú, svo hrærð og bljúg, í sælla engla sveim. 4 Þeir fyrirlitning hlutu' í heim en hér er um skipt fyrir þeim. Þeir ljóma' í sól við lambsins stól í sælu' um eilíf ár. 5 Æ, mörg var þeirra þrenging sár, á þrungnum augum brunnu tár. Þau hefur nú Guðs höndin trú af þerrað þjónum sín. 6 Í lífsins prestaskrúði skín nú skarinn, hátíð aldrei dvín í himnavist, fyrir Herrann Krist æ fjölgar helgur her. 7 Ó, mikli, fríði hetjuher, af hjarta með þér gleðjumst vér, þú reyndist trúr og raunum úr ert leiddur laun að fá. 8 Guð launi þér á himni há, þú hér á jörð með grát réðst sá, nú vitum vér þú víst upp sker með gleði sætum söng. 9 Já, syng af megni: leiðin löng til lífs er stigin, hætt og þröng, þér, líknin blíð sem leystir lýð, sé lofgjörð ár og síð.


T Hans A. Brorson, 1765 – Stefán Thorarensen – Vb. 1861
Den store hvite flokk
L Norskt þjóðlag – BÞ 1912
Den store hvite flokk

Eldra númer 202
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Opb. 7. 9–17

Uppáhalds sálmar

Under Construction