Sálmabók

184. Ó, hve sæll er sá er treysti

Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu

hymn notes
1 Ó, hve sæll er sá er treysti sínum Guði hverja tíð! Hann á bjargi hús sitt reisti, hræðist ekki veðrin stríð. Hann í allri segir sorg: Sjálfur Drottinn mín er borg. Náð og fullting hans mig hugga, hans ég bý í verndar skugga. 2 Í það skjól vér flýjum, faðir, fyrst oss þangað boðið er, veginn áfram göngum glaðir, glaðir því vér treystum þér. Ein er vonin allra best á þér sjálfum byggð og fest að þú sleppir engu sinni af oss kærleikshendi þinni.


T Björn Halldórsson – Sb. 1886
L Johann Schop 1642 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
Werde munter mein Gemüte

Eldra númer 186
Eldra númer útskýring T
Biblíutilvísun Matt. 7.24–27

Uppáhalds sálmar

Under Construction