Sálmabók

180. Legg þú á djúpið

Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu

hymn notes
1 Legg þú á djúpið eftir Drottins orði og æðrast ei því nægja mun þinn forði þótt ómaksför þú farir marga stund. Ef trú og dáð og dugur ei þig svíkur er Drottinn lífs þíns enn þá nógu ríkur og mild hans mund. 2 Legg þú á djúpið þegar Kristur kallar og kveð án tafar holdsins girndir allar og feta beint í fótspor lausnarans og lát ei kross né kvalir ykkur skilja en keppstu við að stunda Guðs þíns vilja með hlýðni hans. 3 Legg þú á djúpið, þú sem enn ert ungur og æðrast ei þótt straumur lífs sé þungur en set þér snemma háleitt mark og mið, haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni og stýrðu síðan beint í Jesú nafni á himins hlið. 4 Legg þú á djúpið, þú sem þreyttur lendir úr þungaróðri heimsins – Jesús bendir – ó, haf nú Drottin hjá þér innan borðs. Þú fer þá góða för í síðsta sinni því sálarforða skaltu byrgja inni Guðs eilífs orðs. 5 Legg þú á djúpið, ó, þú sál mín auma, en eftir skildu hégómlega drauma, þeir sviku þig og sjá, þinn afli brást. Á djúpið út, það kvöldar, Jesús kallar því kvitta vill nú syndir þínar allar Guðs eilíf ást.


T Matthías Jochumsson – Sb. 1886
L Johan P.E. Hartmann 1852 – BÞ 1903
Stor er du Gud! Udtalte Engles Hære

Eldra númer 182
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 5.4–6

Uppáhalds sálmar

Under Construction