Sálmabók

179. Minn Guð og Herra er hirðir minn

Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu

hymn notes
1 Minn Guð og Herra' er hirðir minn, mér hjálpararm hann réttir sinn. Ég veit hann æ mér vill hið besta, ég veit hann ei mig lætur bresta það neitt er getur gagnað mér því góður hirðir Drottinn er. 2 Um blómum stráða, græna grund mig Guðs míns leiðir föðurmund að svalalindum silfurskærum og svalar mér úr lækjum tærum. Hans líknarhöndin hressir mig og hjálpar mér á réttan stig. 3 Og þótt ég gangi' um dauðans dal, hans dimma mér ei ógna skal. Ef geng ég trúr á Guðs míns vegi mér grandar dauðinn sjálfur eigi. Þín hrísla' og stafur hugga mig, minn hirðir, Guð, ég vona' á þig.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Douglas Brotchie 2001

Eldra númer 21
Eldra númer útskýring T
Biblíutilvísun Sálm. 23; Lúk. 15.3–5

Uppáhalds sálmar

Under Construction