Sálmabók

176. Hvað stoðar þig allt heimsins góss

Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu

hymn notes
1 Hvað stoðar þig allt heimsins góss og gæði og gull og silfur, skart og dýrðleg klæði er ber þú utan á þitt dauðlegt hold? Hvar liggur það þá líkaminn er dauður og langt frá öllu prjáli hvílir snauður í myrkri mold? 2 Veist þú þá ei að dómsins lúður dynur, þá djásnið fölnar, veldisstóllinn hrynur og gullkálfurinn hjaðnar eins og hjóm? Veist þú þá ei að ekkert gildi hefur öll auðlegð heims og neina bót ei gefur við Drottins dóm? 3 Vor auðlegð sé að eiga himnaríki, vor upphefð breytni sú er Guði líki, vort yndi' að feta' í fótspor lausnarans, vor dýrðarskrúði dreyrinn Jesú mæti, vor dýrðlegasti fögnuður og kæti sé himinn hans.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Kingo 1674 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
Legg ut på djupet

Eldra númer 179
Eldra númer útskýring T
Biblíutilvísun Lúk. 12.16–21

Uppáhalds sálmar

Under Construction