Sálmabók

175. Þeir lögðu frá sér fisk og net

Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu

hymn notes
1 Þeir lögðu frá sér fisk og net og fóru' á eftir þér því eitt er það sem áður var en annað nú og hér og nýjan himin, nýja jörð hinn nýi maður sér. 2 Þitt forna tákn er fiskur sá sem forðum ristur var á laun í vegg, í við og stein og við mér horfir hvar sem neytt er víns og brotið brauð. Þú býrð og dvelur þar. 3 Þú kallar yfir alda haf og allt sem milli ber því þú ert orð af anda þeim sem enginn maður sér. Nú legg ég frá mér fisk og net og fer á eftir þér.


T Hjörtur Pálsson 2003 – Vb. 2013
L Perry Nelson, 1996 – Vb. 2013
PACE MIO DIO / Bring Peace to Earth Again

Eldra númer 831
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 5.10b–11

Uppáhalds sálmar

Under Construction