Sálmabók

173. Kærleikseldur unaðsskæri

Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu

hymn notes
1 Kærleikseldur unaðsskæri, yndi himins fætt á storð, mína sál af nægtum næri náðar þinnar blessað orð. Jesú minn, ó, miskunn bjarta, myrkra ógnir hrek á braut, vaktu nú í veiku hjarta, veittu lið í hverri þraut. 2 Kom þú, helgi kærleiks andi, kom og lækna hjörtun þjáð, arfi lífsins aldrei grandi áþján heims og myrkraráð. Drottinn, bú í brjósti mínu, ber mér sjálfur æðstan frið, ljós að sjá í ljósi þínu leyf oss hjartans fögnuð við. 3 Drag oss, Guð, frá dauðans gerðum, dafni börn þín aftur frjáls, fjarlæg þú af þreyttum herðum þungar byrðar syndatáls. Nýja sköpun þekktu þína, þú sem gefur von og trú, lát þíns anda loga skína, lýsa þinni kirkju nú. 4 Æ þú biður, andinn sanni, allt svo hefur líf í þér, björgun ertu breyskum manni, blessun þína veittu mér. Veginn heilög kirkja kenni, Krist, hinn sanna Guð og mann, brúðarskartið beri henni, blessun trúar fyrir hann.


T Charles Wesley 1747 — Þórir Jökull Þorsteinsson 1999, 2018
Love divine, all loves excelling
L William P. Roland um 1905
BLAENWERN / Lord, in Love and Perfect Wisdom

Uppáhalds sálmar

Under Construction