Sálmabók

171. Guð helgur andi himni af

Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu

hymn notes
1 Guð helgur andi himni af, hallelúja! kom heimsins til og gjafir gaf. Hallelúja, hallelúja! 2 Hann treystir oss að túlka Krist, hallelúja! og tala nýjum tungum víst. Hallelúja, hallelúja! 3 Hann sína efldi sendimenn, hallelúja! með sannleiksljóma' er lýsir enn. Hallelúja, hallelúja! 4 Þeir frjálsir sannleik flytja hér, hallelúja! Í orði Jesú lífið er. Hallelúja, hallelúja! 5 Þar heyrum Drottins hljóma orð, hallelúja! og hvíld fær hjartað Guðs við borð. Hallelúja, hallelúja! 6 Og sálin sem í skuggsjá hér, hallelúja! síns Drottins ljós og ljóma sér. Hallelúja, hallelúja! 7 Hér heilagt byggir hús Guðs orð, hallelúja! við Drottins laug og Drottins borð. Hallelúja, hallelúja! 8 Og nýtt vér syngjum lofsöngslag, hallelúja! með englum himins hér í dag. Hallelúja, hallelúja! 9 Á hvítasunnuhátíð nú, hallelúja! vér fögnum saman frjáls í trú. Hallelúja, hallelúja!


T Nikolaj F.S. Grundtvig 1840, 1843, 1845 – Einar Sigurbjörnsson 2011 – Vb. 2013
Fra Himlen kom den Helligånd
L 15. öld – Lossius 1553 – Sb. 1589
Puer natus in Betlehem

Eldra númer 828
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction