Sálmabók

167. Í öllum ljóma logar sólin

Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu

hymn notes
1 Í öllum ljóma logar sólin og lýsir gullinn náðarstólinn. Ó, kom þú, hvítasunna' í söng með sumardægrin björt og löng. Nú Drottins mikla máttarorð oss mönnum reiðir nægtaborð. 2 Um gullna óttu áin niðar og árnar hverju lífi friðar. Í kliði hennar Kristur er að kalla mig að fylgja sér. Í draumi lít ég Drottin minn. Í dögun flyt ég lofsönginn. 3 Nú dregur arnsúg ofar tindum. Guðs andi fer í sumarvindum um heiðageim, um fjöll og fjörð að frjóvga landsins ríku jörð. En lífsins elfur leikur sér sem lækur tær við fætur mér. 4 Hér er það Guð sem öllu ræður. Vér erum hans, ó, systur, bræður. Já, endurfædd af anda hans vér elskum guðsmynd sérhvers manns í nafni Krists sem kom á jörð með kærleik Guðs og sáttargjörð. 5 Ó, vertu' ei lengur veill né hálfur. Nei, vittu' að Guð er hjá þér sjálfur. Já, safnist þúsund þjóða mál í þakkarsöngsins fórnarskál. Nú syngi öll hans sveit á jörð með sama rómi lofsöngsgjörð. 6 Við nafn hans lít ég loga brenna og leika á vörum. – Saman renna nú allra þjóða móðurmál í mannssonarins fórnarskál. Í einu nafni ómar hér um eilífð: „Jesú, lof sé þér.“ 7 Þá blómgast rós í ríki þínu. Þú ræður yfir lífi mínu. Með hvítasunnusól ég rís og sest í þinni Paradís. Ég gaf þér, Herra, hjarta mitt og hefi öðlast lífið þitt.


T Nikolaj F.S. Grundtvig 1843, 1853 – Heimir Steinsson 1970 – Vb. 1991
I al sin glans nu stråler solen
L Henrik Rung 1859 – Vb. 1991
I al sin glans nu stråler solen

Eldra númer 579
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction