Sálmabók

149b. Nú máttu ekki, María, gráta

Kirkjuár - Páskar til hvítasunnu

hymn notes
1 Nú máttu' ekki, María, gráta, meistarinn er ekki hér, þar sem þú grúfir og grætur gröfin og myrkrið er. 2 Líttu til annarrar áttar, upp frá harmi og gröf: Ljóminn af lífsins sigri leiftrar um jörð og höf. 3 Sjá, já, nú sérðu, María, sjálfur er Jesús hjá þér upprisinn, ætlar að fæða allt til nýs lífs með sér. 4 Syng því í sigurgleði. Syng fyrir hvern sem er: Kærleikans sól hefur sigrað, sjálfur er Kristur hjá þér.


T Ylva Eggehorn 1970 – Sigurbjörn Einarsson 2008 – Vb. 2013
Gråt inte mer, Maria
L Þorkell Sigurbjörnsson 2009

Eldra númer 823
Eldra númer útskýring T
Biblíutilvísun Jóh. 20.1, 11–18

Uppáhalds sálmar

Under Construction