Sálmabók

147. Árdegisljóminn lýsir skær

Kirkjuár - Páskar til hvítasunnu

hymn notes
1 Árdegisljóminn lýsir skær, lofsöngur himins ómar tær, ljóssins veröld í heiði hlær, helmyrkvinn banasárið fær. 2 Krossfestur lífsins kóngur hár, Kristur, sigraði dauðans fár, brotinn er nú hans broddur flár, brostnar hans grimmu klær og slár. 3 Hann sem í steinþró liðinn lá – lið hermanna þar vakti hjá – sigrandi lífsins brandi brá, bjartari en sól reis dauðum frá. 4 Braut hann og eyddi heljar hlið, hrökk þá á flótta vítislið en allir hlutu hjálp og frið sem heilagt nafn hans kannast við. 5 Harmanna myrkur horfið er, himininn opinn trúin sér, Drottinn lífsins með ljóssins her leiftrandi sigurmerkið ber. 6 Dýrð og vegsemd þér votti nú vakin, fagnandi páskatrú. Heilaga þrenning, huga snú heim til lífsins sem gefur þú.


T Aurelius Ambrosius? – Sb. 1589 – Sigurbjörn Einarsson, 2010 – Vb. 2013
Aurora lucis
L Frá fornkirkjunni – Sb. 1589
Aurora lucis

Eldra númer 930
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction