Sálmabók

146. Fullar hendur af blómum þú hefur

Kirkjuár - Páskar til hvítasunnu

hymn notes
1 Fullar hendur af blómum þú hefur. Hvaða vinur hlýtur þau öll að gjöf? Út að gröf Jesú gekk ég með blómin, fann þá tóma gröf, hann lá ekki þar. :,: Hallelúja, hallelúja. :,: 2 Fullur lofsöngs er líka þinn munnur. Hvaðan sprettur lofgjörðaróður þinn? Yfir gröfinni tómu ég gladdist, hann sem lifir gefur mér fögnuðinn. :,: Hallelúja, hallelúja. :,: 3 Full af gleði' eru augu þín orðin. Seg mér hvaða undur þú hefur séð? Ég sá ævinnar háleita markmið. Jesús breytir myrkri í ljós og yl. :,: Hallelúja, hallelúja. :,: 4 Jesús upprisinn okkar á meðal. Þú sem lifir, elskar og þjáist hér, trúaraugu mín á þér ég festi, hönd og munn gjör einlæg í starfi' og bæn. :,: Hallelúja, hallelúja. :,:


T Marcello Giombini 1970 – Lars Åke Lundberg 1972 – Lilja S. Kristjánsdóttir, 1982 – Vb. 2013
Le tue mani son piene de fiori / Dina händer är fulla av blommor
L Marcello Giombini 1970 – Vb. 2013
Le tue mani son piene de fiori / Dina händer är fulla av blommor

Eldra númer 822
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction