Sálmabók

145. Upprisinn er hann

Kirkjuár - Páskar til hvítasunnu

hymn notes
Upprisinn er hann, húrra, húrra, :,: hann lifir, hann lifir, hann lifir enn. :,: 1 Tóm er gröfin og opin, hví er ekki meistarinn hér? Klæðin hans liggja þar inni enn en enginn veit hvar hann er, enginn veit hvar hann er. Upprisinn er hann ... 2 Glöð við þökkum þér, Jesús, við þekkjum hver máttur þinn er. Þú gafst þig sjálfan til lausnar lýð svo líf eigum æ með þér, líf eigum æ með þér. Upprisinn er hann ... 3 Nýja menn vill Guð gera og gleðin mun ríkja því breytast mun geimur í geislaflóð er Guð skapar allt á ný, Guð skapar allt á ný. Upprisinn er hann ...


T Margareta Melin 1971 – Kristján Valur Ingólfsson 1974 – Vb. 2013
Uppstått har Jesus
L Lars Åke Lundberg 1972 – Vb. 2013
Uppstått har Jesus

Eldra númer 819
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction