Sálmabók

141. Sjá, gröfin hefur látið laust

Kirkjuár - Páskar til hvítasunnu

hymn notes
1 Sjá, gröfin hefur látið laust til lífsins aftur herfang sitt og grátur snýst í gleðiraust. Ó, Guð, ég prísa nafnið þitt. 2 Nú yfir lífs og liðnum mér skal ljóma sæl og eilíf von. Þú vekur mig, þess vís ég er fyrst vaktir upp af gröf þinn son. 3 Á hann í trúnni horfi ég og himneskt ljós í myrkri skín, með honum geng ég grafarveg sem götu lífsins heim til þín.


T Björn Halldórsson – Sb. 1886
L Kempten um 1000 – Erfurt 1524 – Sb. 1589 – Weyse 1840 – PG 1861
(Komm, Gott Schöpfer, Heiliger Geist) / Kom, skapari, heilagi andi

Eldra númer 154
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction