Sálmabók

14. Skaparinn stjarna, Herra hreinn

Kirkjuár - Aðventa og jól

hymn notes
1 Skaparinn stjarna, Herra hreinn, sem hverri sálu lýsir einn, Kristur, sem allan leystir lýð, líknsamur vorum bænum hlýð. 2 Mæddi þinn hug vor mikla neyð, með oss þín heilög elska leið, þú vildir frelsa veröld þá er villt og sek í myrkri lá. 3 Þú komst með dögun, Drottinn hár. Sem dimman flýr við morgunsár eins breiddist ljós þitt bjart um heim, brosir allt líf í geisla þeim. 4 Þú ert það orð sem allt er frá og öllu ráða' og stjórna má, það föður orð sem flutt þá var er fæddist ljós og stjörnurnar. 5 Eins muntu síðast, Drottinn dýr, dæma það allt sem með oss býr og skapa nýjan, hreinan heim. Hjálpa þú oss á degi þeim. 6 Himnar og jörðin hneigi þér, helja og allt sem skapað er. Viljinn þinn góði, valdið þitt, veki og lífgi hjartað mitt.


T Forn hymni – Thomas Müntzer 1523 – ME 1555 – Sb. 1589 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
Conditor alme siderum
L Kempten um 1000 – Weisse 1531 – Sb. 1589
Conditor alme siderum / Gott, heilger Schöpfer aller Stern

Eldra númer 68
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction