Sálmabók

136. Nú hljómi lofsöngslag

Kirkjuár - Páskar til hvítasunnu

hymn notes
1 Nú hljómi lofsöngslag frá lífsins hörpu' í dag því rósin lífsins rauða er risin upp af dauða. Vor lofgjörð linni eigi á lífsins sigurdegi. 2 Þann dýrðardag að sjá, minn Drottinn, er mín þrá því með þér, rósin rauða, ég rísa vil af dauða og lifa þínu lífi, þín líkn mér breyskum hlífi. 3 Ég þakka, Jesú, þér að þú hefur gefið mér þá von sem vetri breytir í vor er sælu heitir. Því linnir lof mitt eigi á lífsins sigurdegi. 4 Burt synd og hjartasorg! Ég sé Guðs friðarborg og lífsins lindir streyma, þar lífið sjálft á heima. Því linnir lof mitt eigi á lífsins sigurdegi.


T Bjarni Jónsson, 1930 – Sb. 1945
L Jacob Regnart 1574 – Vulpius 1609 – Schein 1627 – Sb. 1619
Auf meinen lieben Gott

Eldra númer 155
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction