Sálmabók

134b. Nú rís og brosir röðull nýr

Kirkjuár - Páskar til hvítasunnu

hymn notes
1 Nú rís og brosir röðull nýr. :,: Hallelúja. :,: Og dimman hörfar, dauðinn flýr. :,: Hallelúja. :,: 2 Upp Kristur rís úr kaldri gröf. :,: Hallelúja. :,: Hans ljómi fer um lönd og höf. :,: Hallelúja. :,: 3 Guðs engill flytur fögnuð þann. :,: Hallelúja. :,: Vor Drottinn synd og dauða vann. :,: Hallelúja. :,: 4 Hann sem á krossi hegning leið. :,: Hallelúja. :,: Einn hefur sigrað alla neyð. :,: Hallelúja. :,: 5 Guðs sonur vann hið stóra stríð. :,: Hallelúja. :,: Sitt frelsi gefur föllnum lýð. :,: Hallelúja. :,: 6 Hans tigni nafn hver tunga manns. :,: Hallelúja. :,: Hann lofi jörð sem himnar hans. :,: Hallelúja. :,:


T 14. öld – Sb. 1589 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
Surrexit Christus hodie / Oppstanden er den Herre Krist
L 15. öld – Lossius 1553 – Sb. 1589
Puer natus in Betlehem

Eldra númer 152
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction