Sálmabók

132. Sigurhátíð sæl og blíð

Kirkjuár - Páskar til hvítasunnu

hymn notes
1 Sigurhátíð sæl og blíð ljómar nú og gleði gefur, Guðs son dauðann sigrað hefur, nú er blessuð náðartíð. Nú er fagur dýrðardagur, Drottins hljómar sigurhrós, nú vor blómgast náðarhagur, nú sér trúin eilíft ljós. 2 Ljósið eilíft lýsir nú dauðans nótt og dimmar grafir. Drottins miklu náðargjafir, sál mín, auðmjúk þakka þú. Fagna, Guð þér frelsi gefur fyrir Drottin Jesúm Krist og af náð þér heitið hefur himnaríkis dýrðarvist. 3 Drottinn Jesú, líf og ljós oss þín blessuð elska veitir, öllu stríði loks þú breytir sæluríkt í sigurhrós. Mæðu' og neyð þín miskunn sefi, með oss stríði kraftur þinn. Sigur þinn oss sigur gefi, sigurhetjan, Jesú minn.


T Páll Jónsson – Sb. 1871
L Jean B. Lully 1661 – Kingo 1674 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
Rind nu op i Jesu navn/ Sommes nous pas trop heureux

Eldra númer 147
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Mark. 16.1–8

Uppáhalds sálmar

Under Construction