Sálmabók

130. Hvíli eg nú síðast huga minn

Kirkjuár - Dymbilvika

hymn notes
1 Hvíli eg nú síðast huga minn, Herra Jesú, við legstað þinn. Þegar ég gæti' að greftran þín gleðst sála mín. Skelfing og ótti dauðans dvín. 2 Sektir mínar og syndir barst sjálfur þegar þú píndur varst. Upp á það dóstu, Drottinn kær, að kvittuðust þær. Hjartað því nýjan fögnuð fær. 3 Svo finni eg hæga hvíld í þér, hvíldu, Jesú, í brjósti mér. Innsigli heilagur andi nú með ást og trú hjartað mitt svo þar hvílist þú. 4 Dýrð, vald, virðing og vegsemd hæst, viska, makt, speki' og lofgjörð stærst sé þér, ó, Jesú, Herra hár, og heiður klár. Amen, amen um eilíf ár.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 50
L Sigurður Sævarsson 2007 – Vb. 2013

Eldra númer 817
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jóh. 19.38–42

Uppáhalds sálmar

Under Construction