Sálmabók

13. Velkomin vertu, vetrarperlan fríð

Kirkjuár - Aðventa og jól

hymn notes
1 Velkomin vertu, vetrarperlan fríð, síblessuð sértu, signuð jólatíð, Guðs frá gæsku hendi gulli dýrra hnoss. Þökk sé þeim er sendi þig svo gleðjir oss. Þú oss friðar boðskap ber, birtir grið og náð oss tér, læknar sviða sárt er sker, súta léttir kross. 2 Velkominn vertu, vor Immanúel, ástgjöf sú ertu allt sem bætir vel böl er hjörtu hrjáir, haldin eymd og synd, hvíld er þreyta þjáir, þyrstum svalalind. Jesú góði, þökk sé þér þig að bróður fengum vér, þitt oss blóðið lífgjöf lér, ljóminn Guðs og mynd.


T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Hymnodia Sacra 1742 – Sb. 1772 – PG 1861
Kær Jesú Kristi

Eldra númer 71
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction