Sálmabók

129. Ó, höfuð dreyra drifið

Kirkjuár - Dymbilvika

hymn notes
1 Ó, höfuð dreyra drifið er drúpir smáð og pínt, af höndum þræla þrifið og þyrnum sárum krýnt, ó, heilagt höfuð fríða er himnesk lotning ber en háðung hlaust að líða, mitt hjarta lýtur þér. 2 Þú auglit allra skærast, í upphæð vegsamað, þú yndið engla kærast, hví ertu hrækt og spjað? Hví ertu þannig þjakað að þekkjast mátt ei nú? Hví svo af böðlum blakað að blikna hlýtur þú? 3 Af blygð og harmi hrelldur ég, Herra, játa má: Mín syndasekt því veldur, hún sárt þig lagðist á. Sjá, hér ég er sem hefi þig hrakið, pínt og smáð. Þín miskunn mér þó gefi að megi' eg öðlast náð. 4 Æ, virstu við mig kannast svo vondur sem ég er, og sauð þinn auman annast sem einatt villur fer. Mér virstu særðum svala í sálar þungri neyð, æ, virstu við mig tala og vísa' á rétta leið. 5 Ég vil þar vera hjá þér er veit ég píndan þig og eigi fara frá þér. Æ, fyrirlít ei mig. Er dauðans svefn fær sigið á signað auga þitt ég vil þitt höfuð hnigið við hjartað leggja mitt. 6 Af hjarta þér ég þakka að þyngstan kvaladeyð þú ljúft þér lést að smakka svo leystir mig úr neyð. Lát, Kristur kærleiksríkur, ei kulna trú hjá mér en loks er ævi lýkur mig lát þú deyja' í þér.


T Arnulf frá Louvain fyrir 1250 – Paul Gerhardt 1656 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
O Haupt voll Blut und Wunden
L Hans Leo Hassler, 1601 – Sb. 1871
O Haupt voll Blut und Wunden

Eldra númer 145
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jes. 53.4–5

Uppáhalds sálmar

Under Construction