Sálmabók

121. Jesú, lífs míns lífið sanna

Kirkjuár - Dymbilvika

hymn notes
1 Jesú, lífs míns lífið sanna, líf í dauða gafstu þitt, þú af byrði þjáninganna þreyttist svo mér verði fritt. Þinn, ó, Jesú, dauði deyddi dauða minn og skelfing eyddi. Jesú, þér sé þakkargjörð þúsundföld á himni' og jörð. 2 Saklaus varstu sekur dæmdur sýkn að talinn verði ég, bundinn milli fjenda flæmdur frjáls að minn ég gangi veg. Mér að verði sómi sýndur sárum varstu þyrnum krýndur. Jesú, þér sé þakkargjörð þúsundföld á himni' og jörð. 3 Synda minna byrði barstu, brotin lágu mín á þér, hátt á krosstré hafinn varstu himins til að lyftir mér, faðminn út þú blóðgan breiddir blítt að Guðs í skaut mig leiddir. Jesú, þér sé þakkargjörð þúsundföld á himni' og jörð. 4 Sál þín auðmýkt sýndi blíða, sonur Guðs og blessað lamb, að ég þurfi eigi' að líða ótta' og smán mitt fyrir dramb. Dauðastríð þú hlaust að heyja hægt að veiti mér að deyja. Jesú, þér sé þakkargjörð þúsundföld á himni' og jörð. 5 Fyrir heitu hryggðartárin, hjartakvöl og sálarneyð, fyrir höggin, fyrir sárin, fyrir krossins bitra deyð, fyrir handa'og fóta meinin, fyrir píslarþorsta kveinin, Jesú, þér sé þakkargjörð þúsundföld á himni' og jörð.


T Ernst C. Homburg 1659 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Jesus, du mit liv, min hälsa
L Sænskt lag 1697 – JH 1885
Jesus, du mit liv, min hälsa

Eldra númer 144
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction