Sálmabók

12. Í árdagsbirtu efsta dags

Kirkjuár - Aðventa og jól

hymn notes
1 Í árdagsbirtu efsta dags mun augljós birtast oss sá Guð er heimi huldist fyrr af harðri jötu' og kross. Þó enn sé samur og hann var mun alskær vera hans og sólu fegri ásýnd öll fyrir augum sérhvers manns. 2 Í árdagsbirtu undradýrð er upp af gröf hann stóð og heljarbönd af heimi sleit og hatursöfl og móð, það aðeins trúarsjónin sá. Nú séð fær auga hvert í árdagsbirtu efsta dags mun öllum opinbert. 3 Í árdagsbirtu efsta dags við endurkomu hans mun mætti dauðans, angist, ógn rýmt út úr lífi manns. Og heimar, geimar, mannsins mál, allt merlar gleði' og trú. Því aðventunnar ómi bæn: Kom, ástvin, Kristur, nú! 4 Já, Kristur Jesús, kom þú skjótt, já, kom með friðinn þinn og lækna mig og líf mitt allt, já, lækna heiminn þinn sem villtur fálmar villu stig og voða, firrtur sól. Kom, árdagsbirta efsta dags og unaðssælu jól.


T Forn grískur sálmur – John Brownlie 1907 – Anders Frostenson 1984 – Karl Sigurbjörnsson 1993 – Sb. 1997
Guds son en gång i morgonglans
L Enskt þjóðlag – Sullivan 1874 – Sb. 1997
NOEL / It Came Upon a Midnight Clear / The King Shall Come When Morning Dawns

Eldra númer 721
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Opb. 1.7, 22.20

Uppáhalds sálmar

Under Construction