Sálmabók

119b. Kem ég nú þínum krossi að

Kirkjuár - Dymbilvika

hymn notes
1 Kem ég nú þínum krossi að, kannastu, Jesú minn, við það, syndanna þunginn þjakar mér, þreyttur ég nú að mestu er. 2 Þar við huggar mín sála sig, svoddan allt leiðstu fyrir mig, þíns hjartadreyra heilög lind hreinsar mig vel af allri synd. 3 Dauðanum mót mér djörfung ný daglega vex af orði því: Í dag, þá líður ei langt um það, leidd verður önd í sælustað. 4 Ó, Jesú, séu orðin þín andláts síðasta huggun mín. Sál minni verði þá sælan vís með sjálfum þér í Paradís.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 40
L Klug 1543 eftir eldra lagi – Gr. 1594
Erhalt uns Herr bei deinem Wort

Eldra númer 138
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction