Sálmabók

113. Ó, Herra Jesú, hjá oss ver

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Ó, Herra Jesú, hjá oss ver því heims á vegum dimma fer, þitt orðaljósið lát oss hjá með ljóma hreinum skinið fá. 2 Þótt ill sé tíð og öldin spillt lát oss, þinn lýð, ei fara villt en hjá oss æ þitt haldast orð og helga skírn og náðarborð. 3 Ó, Kristur, þína kirkju styð þótt kuldi' og svefn oss loði við og kenning þinni götu greið um gjörvöll löndin hana breið. 4 Það náði, Guð, þín miskunn mild hvað margir kenna' að eigin vild og hærra meta hugboð sitt en heilagt sannleiksorðið þitt. 5 Ei oss ber heiður heldur þér en heiður þinn, ó, Jesú, er að sigri haldi hjörðin sú er heiðrar þig með réttri trú. 6 Þitt orð er sálar æðsta hnoss, þitt orð er sverð og skjöldur oss. Þótt annað veltist veröld í oss veit til enda' að halda því. 7 Þitt heilagt orðið heims í nauð sé, Herra kær, vort daglegt brauð, oss leiðsögn holl um harmadal og himins inn í gleðisal.


T Philipp Melankton 1551 v. 1 – Nikolaus Selnecker 1572 v. 2–7 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Ach bleib bei uns, Herr Jesu Christ / Det Lakker nu ad aften brat
L Ron Klusmeier 1990
OTTERSPOOR / How Great the Mystery of Faith

Eldra númer 297
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction