Sálmabók

112a. Undirrót allra lasta

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Undirrót allra lasta ágirndin kölluð er. Frómleika frá sér kasta fjárplógsmenn ágjarnir sem freklega elska féð, auði með okri safna, andlegri blessun hafna en setja sál í veð. 2 Annaðhvort er í vonum, auðurinn fagur nú hafnar þér ellegar honum hryggur burt kastar þú þá dauðinn þrengir að. Ágirndin ótæpt svelgir, af því sálina velgir í köldum kvalastað. 3 Falsi og fégirnd rangri forða þér, sál mín blíð, svo mætir ei ógn né angri þá að fer dauðans tíð. Virð lítils veraldar plóg. Hver sem sér lynda lætur það lénar Drottinn mætur, sá hefur alls nægta nóg.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 16
L Sigurður Sævarsson 2007

Biblíutilvísun Matt. 27.3–4

Uppáhalds sálmar

Under Construction