Sálmabók

111. Hirt aldrei hvað sem gildir

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Hirt aldrei hvað sem gildir að hætta' á ósatt mál, hvort verja' eða sækja vildir, verður það mörgum tál. Munnur, sá löngum lýgur, frá lukku' og blessun hnígur, hann deyðir sína sál. 2 Hygg að og herm hið sanna hvenær sem til er reynt, hræðst ei hótanir manna, halt þinni játning beint. Gæt vel að geymir þetta, Guðs orð og trúna rétta meðkenndu ljóst og leynt. 3 Sú er mín huggun sama sem þín var, Jesú minn, krossinn þá að vill ama, ofsókn og hörmung stinn. Hjá þinni hægri hendi hér þó nú lífið endi fagnaðarnægð ég finn. 4 Andlegt vald einum rómi úrskurðar dauðann þér. Drottinn í náðardómi dæmir því lífið mér. Þakka ég elsku þinni, þú keyptir sálu minni fríun og frelsi hér.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 13
L 15. öld – Erfurt 1524 – Gr. 1594 – Íslensk breyting
Herr Christ der einig Gotts Son

Biblíutilvísun Mark. 14.55–59

Uppáhalds sálmar

Under Construction