Sálmabók

108. Frjóvgunareikin vökvuð, væn

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Frjóvgunareikin vökvuð, væn, velblómguð stóð með laufin græn þegar á jörðu sást til sanns son Guðs íklæddur holdi manns. 2 Af hverri grein draup hunang sætt, hjálpræðiskenning fékk hann rætt, öll hans umgengni ástúðleg angraðar sálir gladdi mjög. 3 Guði var þekkt það græna tréð, glöddust himnar og jörðin með. Í hans fæðing það vitnast vann og við Jórdan þá skírðist hann. 4 Saklaus því leið hann sorg og háð syndugt mannkyn svo fengi náð. Hið græna tréð var hrakið og hrist, hér af það visna blómgaðist. 5 Visnað tré ég að vísu er, vægðu, réttlætis Herrann, mér, gæskunnar eikin græn og fín, geymdu mig undir skugga þín. 6 Tæpti ég mínum trúarstaf á tréð sem drýpur hunang af. Sjón hjartans öllu angri í upplýsist nær ég smakka á því. 7 Þegar mér ganga þrautir nær, þér snú þú til mín, Jesú kær, hjartað hressi og huga minn himneskur náðarvökvi þinn.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 32
L Weisse 1531 – Sb. 1589 – SÓ 2015
Veni redemptor gentium (íslensk breyting)

Eldra númer 135
Eldra númer útskýring T
Biblíutilvísun Lúk. 23.27–31

Uppáhalds sálmar

Under Construction