Sálmabók

107. Jesús eymd vora alla sá

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Jesús eymd vora alla sá, ofan kom til vor jörðu á, hæðum himna upprunninn af, undir lögmálið sig hann gaf. 2 Viljuglega í vorn stað gekk, var sú framkvæmdin Guði þekk, föðurnum hlýðni fyrir oss galt, fullkomnaði svo lögmál allt. 3 Fullkomnað lögmál fyrir þig er, fullkomnað gjald til lausnar þér, fullkomnað allt hvað fyrir var spáð, fullkomna skaltu eignast náð. 4 Herra Jesú, ég þakka þér þvílíka huggun gafstu mér, ófullkomleika allan minn umbætti guðdómskraftur þinn. 5 Hjálpa þú mér svo hjartað mitt hugsi jafnan um dæmið þitt og haldist hér í heimi nú við hreina samvisku' og rétta trú.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 43
L Genf 1545 – Sb. 1589 – PG 1861
Wenn wir in höchsten Nöthen sein

Eldra númer 133
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jóh. 19.28–30

Uppáhalds sálmar

Under Construction