Sálmabók

106. Krossferli að fylgja þínum

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Krossferli' að fylgja þínum fýsir mig, Jesú kær, væg þú veikleika mínum þó verði' eg álengdar fjær. Þá trú og þol vill þrotna, þrengir að neyðin vönd, reis þú við reyrinn brotna og rétt mér þína hönd. 2 Oft má af máli þekkja manninn, hver helst hann er, sig mun fyrst sjálfan blekkja sá með lastmælgi fer. Góður af geði hreinu góðorður reynist víst, fullur af illu einu illyrðin sparir síst. 3 Í veraldar vonskusolli velkist eg, Jesú, hér. Falli það oft mér olli, óstöðugt holdið er. Megnar ei móti'að standa mín hreysti náttúrlig. Láttu þitt ljós og anda leiða og styrkja mig.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 11
Krossferli að fylgja þínum
L Antwerpen 1540 – Thomissøn 1569 – Sb. 1589
Det dages nu i Østen

Eldra númer 131
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jóh. 18.12–15

Uppáhalds sálmar

Under Construction