Sálmabók

105. Þú sem andinn yfirskyggði

Kirkjuár - Boðunardagur Maríu

hymn notes
1 Þú sem andinn yfirskyggði, unga mærin, forðum daga og á Drottins orði byggðir, eilíf blessun varð þín saga. Heil vert þú sem nýtur náðar Guðs. 2 Hugsun Guðs er allri ofar ályktun og dómi manna. Vegu hans sem verkin lofa verður oss ei leyft að kanna. Heil vert þú sem nýtur náðar Guðs. 3 Soninn undir belti barstu, blessun himna af þér nærðist. Sælust allra svanna varstu, sól með þér um heiminn færðist. Heil vert þú sem nýtur náðar Guðs.


T Sigurjón Guðjónsson – Sb. 1972
L Jan Sicking – Vb. 1976

Eldra númer 126
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 1.26–38

Uppáhalds sálmar

Under Construction