Sálmabók

104. Guðs engill birtist ungri stúlku

Kirkjuár - Boðunardagur Maríu

hymn notes
1 Guðs engill birtist ungri stúlku hjá, með yndislegan boðskap himnum frá. Og sagði: „Heil vert þú, er finnur náð hjá Guði.“ Þú, mætust allra meyja, María! 2 „Í fylling tímans fæðast mun þér son, er flytur myrkum heimi trú og von. Og græðir lífsins sár með kærleiks vörmu hjarta.“ Þú, mætust allra meyja, María! 3 Og hér barst röddin hlý og mildileg: „Sem Herrann æskir, fús það geri ég.“ Við orðin ljúfu Gabríel þá hvarf á brautu. Þú, mætust allra meyja, María! 4 Og blítt svo fæddist barn: Emmanúel. Í Betlehem upp lýstist næturþel. Enn minnist þess um heimsbyggð alla kristinn lýður. Þú, mætust allra meyja, María!


T Jólakvæði frá Baskalandi – Sabine Baring-Gould 1922 – Sigurður Ægisson 1990, 2013
The angel Gabriel from heaven came
L Þjóðlag frá Baskalandi
GABRIEL'S MESSAGE / Angelus ad virginem / Birjina gaztettobat zegoen

Biblíutilvísun Lúk. 1.26–38

Uppáhalds sálmar

Under Construction