Sálmabók

103. Nú gleðifregn oss flutt er ný

Kirkjuár - Boðunardagur Maríu

hymn notes
1 Nú gleðifregn oss flutt er ný úr fögrum himinsölum: Sá Guð er hæst býr hæðum í vill hér í jarðardölum oss búa hjá; um blessun þá og birta leyndardóma Guðs engla raddir óma. 2 Ein kyrrlát mær þá kveðju fær sem kætir bæði' og hræðir, að hennar sonur hjartakær er hún á síðan fæðir það veldi fær er voldugt nær um víðar heimsins álfur og hærra' en himinn sjálfur. 3 Við mey þá engill mæla réð: „Þú munt af himnum þiggja Guðs anda gjöf; þig mun þar með Guðs máttur yfirskyggja. Og lífs þíns von, þinn ljúfa son, þú lausnara skalt kalla, hann endurleysir alla.“ 4 Lát kraft þinn, Jesú, Jesú minn, mig jafnan yfirskyggja og lát þitt orð og anda þinn mér æ í hjarta byggja svo ég sé þinn og þú sért minn og þinn æ minn sé vilji og ekkert okkur skilji. 5 Þitt himnaríki' í hjarta mér þinn helgur andi búi svo hafni' eg því sem holdlegt er en hjarta til þín snúi uns englum jafn þitt Jesúnafn fæ ég með þeim að róma hjá þér í lífsins ljóma.


T Thomas Kingo 1689 – Nikolaj F.S. Grundtvig 1837 – Valdimar Briem – Sb. 1886
Nu kom der bud fra englekor
L Mainz um 1390 – Nürnberg 1523 – Ssb. 1936
Es ist das Heil uns kommen her

Eldra númer 573
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 1.26–38

Uppáhalds sálmar

Under Construction