Sálmabók

102. Lofsöngur ómar

Kirkjuár - Boðunardagur Maríu

hymn notes
1 Lofsöngur ómar svo heyra má heimur heilagan óðinn af vörum Guðs móður, andsvarið hennar við himinsins boðum: Mín önd dásamar Drottin, hans miskunn varir um eilíf ár með öllum þeim sem elska hans nafn. Hallelúja, hallelúja. 2 Samstillt í trúnni með systrum og bræðrum syngjum vér orð sem María gaf vængi, fagnandi hlýðin Guðs heilaga anda. Mín önd dásamar Drottin ... 3 Orðið varð maður, það undur vér tignum. Andi þinn, Guð, sem Maríu var gefinn veki oss lofsöng er varir um eilífð. Mín önd dásamar Drottin ...


T Svein Ellingsen 1977 – Sigurbjörn Einarsson 1986 – Vb. 1991
Lovsangen toner og jorden får høre
L Johan V. Ugland 1977 – Vb. 1991
Lovsangen toner og jorden får høre

Eldra númer 572
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 1.46–55

Uppáhalds sálmar

Under Construction