Sálmabók

101. Brauð til saðnings svöngum

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Brauð til saðnings svöngum gefa sól og mold og haf af náð. Svo sem alvalds elskan býður orðið frá hans vörum líður, fylla undrin lög og láð. 2 Brauð af himni, saðning sanna, son Guðs, Jesús Kristur, er. Himnum frá hann fór að leita föllnum að og þeim að veita líkn og eilíft líf með sér. 3 Brauð á helgu borði þínu blessar, Jesús, návist þín þar sem systkin saman finna svölun guðdómslinda þinna, líf sem aldrei deyr né dvín. 4 Brauð þitt viltu veröld gefa, vilt oss senda með þinn auð handa þeim sem hungur líða hjálp að veita, með þér stríða móti heimsins myrku nauð. 5 Brauð sem endist öllum snauðum, er það til? Því svarar þú: Miðlið, jafnið mínum auði, misréttið er allra dauði, verið mínum vilja trú.


T Per Lønning 1967 – Sigurbjörn Einarsson, 1996 – Vb. 2013
Brød for verden lot du vokse
L Anfinn Øien 1967 – Sb. 1997
Brød for verden lot du vokse

Eldra númer 814
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jóh. 6.1–15

Uppáhalds sálmar

Under Construction