Sálmabók

100. Enn í trausti elsku þinnar

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Enn í trausti elsku þinnar er með guðdóms ljóma skín fyrir sjónum sálar minnar, sonur Guðs, ég kem til þín. Líkn ég þrái, líkn ég þrái, líttu því í náð til mín. 2 Mitt af syndum særða hjarta sundurkramið meðtak þú, lát þinn ástarljómann bjarta lífga það og styrkja nú. Lækna sárin, lát mín tárin ljóma' af elsku' og sannri trú. 3 Allar nægtir æðstu gæða eg, minn Jesú, fæ hjá þér, himnesk orð þín hugga' og fræða, himnesk náð þín líknar mér. Hold og blóð þitt, hold og blóð þitt himnesk lífsins fæða er.


T Páll Jónsson – Sb. 1871
L Andreas P. Berggreen 1854 – Sb. 1871
Her vil ties, her vil bies

Eldra númer 340
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction