Sálmabók

10. Þú, brúður Kristi kær

Kirkjuár - Aðventa og jól

hymn notes
1 Þú, brúður Kristi kær, ó, kom, þín heill er nær. Þig nálgast góður gestur, þinn Guð og vinur bestur. Hósanna, dýrð sé Drottni, hans dýrðin aldrei þrotni. 2 Frá inni út þér flýt og elskhuga þinn lít. Veit lávarð þínum lotning með lofgjörð, Síons drottning. Hósanna, dýrð sé Drottni, hans dýrðin aldrei þrotni. 3 Dreif kvistum konungs leið, þín klæði' á veginn breið, í höndum haf þú pálma, syng hátíðlega sálma. Hósanna, dýrð sé Drottni, hans dýrðin aldrei þrotni. 4 Hann líka láttu þá þín lofa börnin smá. Með helgum svari hljómi öll hjörð Guðs einum rómi: Hósanna, dýrð sé Drottni, hans dýrðin aldrei þrotni.


T Danskur sálmur frá 16. öld – Páll J. Vídalín – Gr. 1691 – Stefán Thorarensen – Sb. 1886
Fryd dig, du Kristi brud
L Jacob Regnart 1574 – Vulpius 1609 – Schein 1627 – Sb. 1619
Auf meinen lieben Gott

Eldra númer 58
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jóh. 12.12–15

Uppáhalds sálmar

Under Construction