Sálmabók

1. Ó, Guð vors lands

Þjóðsöngur - Þjóðsöngur

hymn notes
1 Ó, Guð vors lands! Ó, lands vors Guð! Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn! Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans þínir herskarar, tímanna safn. Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár og þúsund ár dagur, ei meir, eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár sem tilbiður Guð sinn og deyr. :,: Íslands þúsund ár, :,: eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár sem tilbiður Guð sinn og deyr. 2 Ó, Guð vors lands! Ó, lands vors Guð! Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá. Vér deyjum ef þú ert ei ljós það og líf sem að lyftir oss duftinu frá. Ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf, vor leiðtogi' í daganna þraut og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf og vor hertogi' á þjóðlífsins braut. :,: Íslands þúsund ár :,: verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár sem þroskast á Guðs ríkis braut.


T Matthías Jochumsson 1873, 1874 – Vb. 1912
Lofsöngur
L Sveinbjörn Sveinbjörnsson 1874 – BÞ 1912

Eldra númer 516
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 90

Uppáhalds sálmar

Under Construction