Mynd sem tengist textanum

Sálgæslu- og fjölskylduþjónusta

Allir geta nýtt sér þjónustu Sálgæslu og fjölskylduþjónustu kirkjunnar í Háteigskirkju. Þjónustan er til húsa á neðri hæð safnaðarheimilis Háteigskirkju, gengið inn austan megin.

Þjónustan


Boðið er upp á eftirfarandi viðtöl:

Sorgarviðtöl

Sambúðarviðtöl

Fjölskylduviðtöl

Sálgæsluviðtöl

Handleiðslur

Miðað er við að hvert viðtal sé klukkutími. Einnig er í boði hópastarf, bæði fyrir skjólstæðinga en líka hóphandleiðslur fyrir starfsfólk kirkjunnar sem á líka kost á einkasamtölum.

Sálgæslu- og fjölskylduþjónusta kirkjunnar er hluti af sálgæslustarfi kirkjunnar og þjónar öllu landinu. Öllum er heimilt að leita beint til Sálgæslu- og fjölskylduþjónustunnar og sumir koma samkvæmt ábendingu prests eða annarra aðila. Hjá Sálgæslu- og fjölskylduþjónustunni starfa prestar og fjölskyldufræðingar með mikla reynslu. Þjónustan er einnig í samstarfi við Félagsmálaráðuneytið um stuðning við fjölskyldur fanga.

Þú getur í fyrstu snúið þér til þíns sóknarprests og leitað aðstoðar hans eða hennar. Prestar kirkjunnar um land allt hafa sérstaka viðtalstíma fyrir sóknarbörn sín.

Hægt er að fá bóka viðtalstíma beint í gegnum símsvara og tölvupóst. Einnig er hægt að tala við starfsfólk sókna og biðja þau um að hafa milligöngu.

Símanúmer: 528 4300

Markmið handleiðslu eru m.a. eftirfarandi:


Efling starfssjálfsins sem felst í því að skoða mörkin sín og læra að aðgreina starfsjálf og einkasjálf

( starf og einkalíf).


Fyrirbyggja kulnun í starfi
Auka starfsgleði.
Auka samvinnu og samskipti aðila þar sem við á.

Greinar
Til skiptis hjá foreldrum - Grein eftir Benedikt Jóhannsson sálfræðing um líðan og aðlögun unglinga eftir fjölskyldugerðum
Börn og fjölskylduaðstæður - Grein eftir Benedikt Jóhannsson sálfræðing
Æðruleysisbænin og hinar klassísku dygðir - Grein eftir Benedikt Jóhannsson sálfræðing

Starfsfólk


Fjölskyldufræðingarnir sem hér starfa eru öll með sérmenntun og reynslu í fjölskylduráðgjöf og handleiðslu.

Fjölskyldufræðingarnir hafa samráð sín á milli til að veita sem faglegasta þjónustu.

Andrea Baldursdóttir, fjölskyldufræðingur

andrea.baldursdottir[hjá]kirkjan.is

Guðrún Kolbrún Otterstedt, fjölskyldufræðingur 

gudrun.kolbrun.otterstedt[hjá]kirkjan.is

Karen Lind Skjaldberg, prestur 

karen.ol[hjá]kirkjan.is

Vigfús Bjarni Albertsson, forstöðumaður

vigfus.bjarni.albertsson[hjá]kirkjan.is

Símanúmer Fjölskyldu - og sálgæsluþjónustu kirkjunnar er: 528 4300.

Trúnaður

Fjölskyldu - og sálgæsluþjónusta kirkjunnar er bundin þagnarskyldu. Við geymum ekki skýrslur um fjölskylduna, en skráum nauðsynlegar upplýsingar meðan á viðtölunum stendur.

Dragðu ekki að leita þér hjálpar hjá okkur eða annars staðar. Góð samskipti við aðra, einkum okkar nánustu, eru mikilvæg fyrir vellíðan og heilbrigði.

Bjargráð


Fagleg þjónusta við fjölskyldur fanga.

Þjónustan

Þegar einhver nákomin þarf að fara í afplánun í fangelsi getur það haft margvísleg áhrif á marga í kringum einstaklingin. Bjargráð er verkefni sem er styrkt af Félags og vinnumarkaðsráðuneytinu. Verkefnið er hýst af Biskupstofu

Bjargráð er hugsað fyrir fjölskyldur og aðstandendur þar sem einhver nákomin:


    • Bíður eftir afplánun

    • Er í afplánun

    • Er laus úr afplánun

Bjargráð hefur aðsetur hjá Fjölskyldu - og sálgæsluþjónusta kirkjunnar er til húsa á neðri hæð safnaðarheimilis Háteigskirkju, Háteigsvegi 27-29.


Starfsfólk


Eiríkur Steinarsson eirikur.steinarsson@kirkjan.is sími 867-2450

Jenný Þórkatla Magnúsdóttir jenny.magnusdottir@kirkjan.is sími 771-4966

Starfsmennirnir erum menntaðir fjölskyldufræðingar og hafa víðtæka reynslu af fjölskylduráðgjöf

Trúnaður


Starfsmenn Bjargráðs eru bundnir þagnarskyldu. Við geymum ekki skýrslur um fjölskylduna, en skráum nauðsynlegar upplýsingar meðan á viðtölunum stendur.

Víð hvetjum aðstandendur að leita sér fagaðstoðar hjá okkur eða annars staðar.