Mynd sem tengist textanum
Kirkjugarður
Fjöldi: 70

Sæbólskirkja

Sæbólskirkja er friðlýst steinsteypukirkja, sem byggð var árið 1929. Guðjón Samúelsson arkitekt og húsameistari ríkisins teiknaði kirkjuna og er hún ein af hans fyrstu kirkjuteikningum.

Kirkjan var vígð í september árið 1929 og ber höfundi sínum og söfnuði fagurt vitni. Í aftakaveðri í janúar 1924 fauk timburkirkja sem reist hafði verið á Ingjaldssandi árið 1858. Þá efndi 70 manna söfnuður kirkjunnar til fjársöfnunar um Dýrafjörð, Önundarfjörð og meðal brottfluttra í Reykjavík, svo unnt yrði að byggja nýja kirkju. Smiður kirkjunnar var Torfi Hermannsson, sem ættaður var frá Fremstuhúsum í Dýrafirði.

Á hvorri hlið kirkjunnar eru þrír bogadregnir gluggar. Kirkjudyr eru bogadregnar og tveir bogadregnir gluggar sitt hvoru meginu við dyrnar. Ofan við þær er hringlaga gluggi. Altaristöfluna málaði Björn Guðmundsson, kennari og síðar skólastjóri á Núpi, eftir forsögn séra Sigtryggs Guðlaugssonar sem var prestur við kirkjuna og hann vígði hana. Hún er kross með fjólubláum og hvítum reitum að baki. Kirkjan á silfurkaleik og patínu, sem eru danskir smíðisgripir frá árinu 1736.

Torfi kirkjusmiður smíðaði og gaf skírnarfontinn, en skírnarskálin er eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. Guðrún Vigfúsdóttir frá Tungu í Valþjófsdal málaði skírnarfontinn. Útskurður í kirkjunni er eftir Jón Jónsson bónda og kirkjuhaldara á Sæbóli. Tvær klukkur eru í Sæbólskirkju. Önnur er frá árinu 1824 en hin er leturlaus.

Prestar
Mynd sem tengist textanum
  • Fjölnir Ásbjörnsson
  • Prestur
Mynd sem tengist textanum
  • Hildur Inga Rúnarsdóttir
  • Prestur
Mynd sem tengist textanum
  • Magnús Erlingsson
  • Prófastur